Fyrir ţá sem fengu illt í augun viđ ţađ ađ lesa afsökun međ g-i biđst ég forláts á ţessum mistökum mínum....fyrirgefđu Gógó :$Allir orđnir heitir?
29. desember 2009 klukkan 22:41
Og já að sjálfögðu vísar titill þessarar bloggfærslu til áramótaannálsins margrómaða, en ekki hvað? Reyndar ætla ég aðeins að róa líðinn með því að tilkynna ykkur að áramótaannállinn í ár verður langtum slakari en síðustu ár og stafar það einkum af minnisleysi okkar systra (ég hefði átt að skrifa dagbók eins og pabbi). Við vorum að vinna í annálnum fyrir nokkrum dögum en gáfumst fljótt upp þegar við gerðum okkur grein fyrir því að við værum bara alls ekkert fyndnar. Mamma reyndi eitthvað að hjálpa okkur og vildi helst að karl faðir okkar yrði okkar helsti skotspónn...en það gekk náttúrulega ekki upp því við vorum þá þegar búnar að gera hann að nægilegu athlægi :P
En fyrir þá sem ekki hafa gert sér grein fyrir því þá er það Helga sem situr við skriftir
Núna sit ég "heima" í Hvassaleiti, og auðvitað í græna hægindastólnum sem er í svona líka miklu uppáhaldi hjá okkur systrum, en eins og við höfum komið inná þá stendur maður einfaldlega ekkert uppúr þessum stól ef maður sest í hann á annað borð. Er í stuttu stoppi hérna í bænum til að sinna ýmsum erindagjörðum en aðalega til þess að æfa og reyndar líka hitta lækni, nuddara og kýrópraktor. Þar fyrir utan er ég aðallega búin að halda mig í sundlaugum bæjarins, en síðan klukkan hálf átta í gærkvöldi er ég búin að fara þrisvar í sund góðan daginn takk fyrir....En það er sama hversu oft ég fer í sund, ég bara fæ ekki nóg af því...þ.e.a.s. ég fæ ekki nóg af því að slappa af í pottinum, ég get sko alveg fengið mig fullsadda af því að sprikkla með kút eða drukna í skriðsundinu :P En næst þegar ég fer í sund í svona frosti og snjó ætla ég samt að muna eftir inniskóm eins og gamla fólkið, því það er ekkert grín að fá hnífbeitta saltkögglana á kaf í lappirnar á sér, og reyndar ætla ég líka að taka með mér snjógalla næst þegar ég fer í Laugardalslaugina í svona kulda, bara svona svo mér verði ekki kalt á meðan ég labba á milli pottanna í loðinniskónum með heitt kakó í bolla :) Þú fyrst erum við farin að tala saman
En mikið afskaplega er ég búin að hafa það gott um jólin, svo gott að ég gæti einfaldlega ekki vanist því. Fékk mikið af fínum jólagjöfum en best var samt að fá Sibbu og Stínu heim. Það er bara svo gaman þegar við krakkarnir erum öll heima, það eru jólin í mínum huga! En núna eru Sibba og Stína farnar í útlandið aftur og því verðum við "bara" fimm heima á gamlárskvöld. Að sjálfsögðu munum við Gógó systir ekki bregða út af vananum og skála í óáfengu barnakampavíni úr Hagkaup, ekki það að aðrir fjölskyldumeðlimir séu eitthvað að skála í einhverju áfengara, við Gróa erum bara þær einu sem erum svona dannaðar, drekkum úr ekta kampavínsglösum og allt (sem ég reyndar skil ekki alveg í hvaða tilgangi voru keypt! Eða jú, þau tilheyra víst byttunni á bænum...ekki satt Stína? ;P)
Stundatöflu vorannar hef ég nú fengið í hendurnar og eitthvað þarfnast sú tafla lagfæringar. Ég á alltaf að vera í líffræði og táknmáli á sama tíma sem er nú ekki alveg að ganga upp :/ Annars verð ég mjög lítið í skólanum. Eins og hún lítur út í dag fer ég bara í einn tíma á miðvikudögum og er bara einu sinni búin klukkan 15:25 sem er reyndar akkúrat á föstudögum, sem er alveg gífurlega týbískt!
Mér hefur hlotnast sá heiður að vera í topp 10 í kjöri íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins. Ég er alveg virkilega þakklát fyrir þessa viðurkenningu og hlakka til þann fimmta þegar úrslitin verða kunngjörð. Reyndar hef ég mestar áhyggjur af því hverju ég á að klæðast á svona fínni samkomu og reyndar er þetta alveg fín afsögun til þess að kaupa sér eitthvað smekklegt :)
En jæja ég ætla að fara að sofa núna. Morgunæfing í fyrramálið og því þarf maður að rífa sig upp fyrir allar aldir...það sem á mann er lagt ;P

http://nunnunar.bloggar.is
Helga Margrét og Guđrún Gróa
Fyrir ţá sem fengu illt í augun viđ ţađ ađ lesa afsökun međ g-i biđst ég forláts á ţessum mistökum mínum....fyrirgefđu Gógó :$#1
29. desember 2009 klukkan 22:45
Guđrún Eik
Hahahahaha :D
En til hamingju með tilnefninguna Helga mín, þú ert vel að henni komin! :)

#2
30. desember 2009 klukkan 09:52
sibba
hlakka til að lesa áramótaannálinn og verið nú rosalega duglegar að blogga á nýja árinu!! knúsímúsí á ykkur
#3
30. desember 2009 klukkan 15:53